Við erum með súpur, plokkfisk, beyglur, gott kaffi og ýmislegt meðlæti svo eitthvað sé talið.
Bryggjukaffi er notalegt kaffihús á Flateyri. Í kringum páskana 2026 ætlum við að hafa samfellda opnun frá laugardeginum 28. mars til mánudags 6. apríl, frá 11:00-18:00 alla dagana. Á matseðlinum erum við með afar vinsæla fiskisúpu auk súpu dagsins sem ekki er síður vinsæl og ávallt hægt að fá vegan útgáfu. Beyglur bökum við á staðnum og framreiðum með fernskonar áleggs samsetningu. Einnig erum við með plokkfisk, harðfisk með smjöri, vestfirska hveitiköku og rúgbrauð með rauðmaga. Kaffið okkar er mjög gott og hægt að fá ýmsar kökur eða vöfflu með því. Komið og njótið góðrar stemningar.
Opnunartímar
Mánudagur
11:00 – 18:00
Þriðjudagur
11:00 – 18:00
Miðvikudagur
11:00 – 18:00
Fimmtudagur
11:00 – 18:00
Föstudagur
11:00 – 18:00
Laugardagur
11:00 – 18:00
Sunnudagur
11:00 – 18:00